Sýslumenn: Önnur þjónusta sýslumanna
Hvert á að senda reikninga vegna gjafsóknarmála?
Reikninga vegna gjafsóknarmála skal stíla á Sýslumanninn á Vesturlandi og senda á heimilisfangið: Stillholt 16-18, 300 Akranes.
Reikningar skulu vera sendir í frumriti á pappírsformi. Ekki er hægt að taka á móti rafrænum reikningum vegna gjafsóknarmála.
Hægt er að senda reikninga vegna gjafsóknarmála þegar dómur/úrskurður hefur verið kveðinn upp vegna málsins. Ekki eru greiddir reikningar vegna gjafsóknarmála fyrr en dómur/úrskurður liggur fyrir.
Undantekning frá þessu er kostnaður vegna dómkvaddrar matsgerðar. Hægt er að innheimta kostnað vegna dómkvaðningar matsgerðar áður en dómur/úrskurður hefur verið kveðinn upp.
Hér má finna nánari upplýsingar um gjafsókn.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?