Mannauðstorg ríkisins: Laun og kjaramál
Vaktaálagsgreiðslur
Vinnuvika vaktavinnufólks í fullu starfi er 36 virkar vinnustundir en getur farið niður í allt að 32 vinnustundir hjá þeim sem vinna kvöld-, nætur- og helgarvaktir. Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sem er 0,632% af mánaðarlaunum.
Vaktaálag er eftirfarandi:
33,33% kl. 17:00 – 24:00 mánudaga til fimmtudaga
55,00% kl. 17:00 – 24:00 föstudaga
65,00%kl. 00:00 – 08:00 þriðjudaga til föstudaga
55,00% kl. 08:00 – 24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga
75,00% kl. 00:00 – 08:00 laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
120,00% kl. 00:00 – 24:00 stórhátíðardaga, þó þannig að frá kl. 16:00 til 24:00 á aðfangadag og gamlársdag og kl. 00:00 til 08:00 á jóladag og nýársdag er 165% álag.
Brot úr klukkustund greiðist hlutfallslega.
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.