Mannauðstorg ríkisins: Laun og kjaramál
Önnur laun
Í fyrsta kafla flestra kjarasamninga kemur fram að auk mánaðarlauna er heimilt að greiða önnur laun er starfinu fylgja með mánaðarlegri greiðslu.
Önnur laun eru til komin vegna starfstengdra þátta m.a. vegna reglubundinnar yfirvinnu og starfstengds álags sem ekki verður mælt í tíma. Önnur laun geta komið í stað yfirvinnukaups.
Jafnan taka önnur laun ekki sjálfkrafa kjarasamningsbundnum hækkunum. þar sem ein af forsendum endurskoðunar á öðrum launum er breyting á inntaki starfs og því geta önnur laun verið breytileg frá einum tíma til annars.
Í samningalotu ársins 2024 var þó samið um að á samningstímanum myndu önnur laun taka eftirfarandi hækkunum: 3,25% þann 1. apríl 2024, 3,5% 1. apríl 2025, 3,5% 1. apríl 2026 og 3,5% 1. apríl 2027.
Launakerfið Orri: Launategund – Önnur laun sem starfinu fylgja (568)
Finnurðu ekki það sem þig vantar?
Hvernig getum við aðstoðað?
Mannauðstorg ríkisins
Ábyrgðaraðilar síðunnar eru Kjara- og mannauðssýsla ríkisins og Mannauðssvið Fjársýslunnar.