Alþjóðleg vernd fyrir systkini fylgdarlauss flóttabarns
Skilyrði
Barn sem sækir um alþjóðlega vernd með fjölskyldusameiningu við systkini sitt, sem hefur stöðu fylgdarlauss flóttabarns á Íslandi,
þarf að vera yngra en 18 ára þegar umsókn er lögð fram,
má ekki eiga maka,
þarf að búa hjá og vera í forsjá foreldris sem einnig sækir um fjölskyldusameiningu.
Fylgdarlausa flóttabarnið þarf að hafa fengið viðurkenningu á réttarstöðu sinni sem flóttamaður á Íslandi áður en það varð 18 ára.
Forsjáraðili sem ekki er líffræðilegt foreldri barns á ekki rétt á dvalarleyfi fyrir barnið nema forsjáraðilinn hafi jafnframt ættleitt það.
Ættleiðingu þarf að vera lokið áður en umsókn er lögð fram og hún þarf að vera gerð í samræmi við íslensk lög. Ef einstaklingur búsettur hér á landi ætlar að ættleiða barn erlendis, þarf forsamþykki sýslumanns fyrir henni, sjá lög um ættleiðingar númer 130/1999.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun