Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Hafskipulag

Þessi frétt er meira en árs gömul

Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022

15. júní 2022

Fyrir liggur tillaga að Strandsvæðisskipulagi Austfjarða 2022 sem kynnt er samkvæmt 12. gr. laga um skipulag haf- og strandsvæða nr. 88/2018. Í skipulagstillögunni er sett fram stefna um nýtingu svæðis sem nær yfir firði og flóa frá Almenningsfles í norðri að Hvítingum í suðri.

dreamstime nordfj dudlajzov 211097443

Skipulagstillagan ásamt umhverfismati er aðgengileg á www.hafskipulag.is og liggur jafnframt frammi hjá Skipulagsstofnun í Reykjavík og á skrifstofum Múlaþings og Fjarðabyggðar. Hana má einnig nálgast hér að neðan.

Kynningarfundir

Sumarið 2022 eru kynningarfundir um skipulagstillöguna haldnir á eftirfarandi stöðum:

  • Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar, 27. júní kl. 16:30-18:00

  • Menningar- og félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði, 28 júní kl. 16:30-18:00

  • Skrifstofu Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, Reykjavík, 9. ágúst kl. 13:30-15:30

Allir sem vilja sig láta varða skipulag svæðisins eru hvattir til að kynna sér skipulagstillöguna. Allir sem þess óska geta komið á framfæri ábendingum og gert athugasemdir við skipulagstillöguna og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri er til 15. september 2022.

Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, Borgartúni 7b, 105 Reykjavík, með tölvupósti á netfangið hafskipulag@skipulag.is.

Svæðisráð Austfjarða

Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022: Tillaga svæðisráðs til kynningar

Strandsvæðisskipulag Austfjarða 2022: Uppdráttur

Umhverfismatsskýrsla: Umhverfismat tillögu svæðisráðs að strandsvæðisskipulagi Austfjarða