Umsókn um leyfi fyrir notkun á geislavirku efni
Geislavarnir ríkisins gefa út leyfi fyrir notkun á geislavirkum efnum. Ekki má hefja notkun fyrr en leyfi hefur verið gefið út.
Sækja þarf sérstaklega um leyfi til innflutnings, jafnvel þó notandi annist sjálfur innflutning.
Umsóknarferli
Beðið er um ólíkar upplýsingar eftir því hvort um opna eða lokaða geislalind ræðir.
Til þess að fylla út umsókn þarft þú að hafa tiltækar upplýsingar um:
nafn, kennitölu, menntun og netfang ábyrgðarmanns
notanda geislavirka efnis til dæmis nafn fyrirtækis og nafn og netfang tengiliðar
upplýsingar um efnið, til dæmis kjarntegund, virkni, umbúðir efnis og fyrirhuguð notkun
upplýsingar um tæki sem geislavirka efnið er í, ef við á
Fylgigögn
Til þess að fá leyfi til notkunar á geislavirkum efnum þarf meðal annars að:
tilnefna ábyrgðarmann sem Geislavarnir ríkisins samþykkja
leggja fram áætlun um förgun geislavirka efnis og ef við á
staðfestingu vegna kostnaðar við förgun
leggja fram öryggismat
skila áætlun um förgun
Ef um er að ræða hágeislavirka geislalind þarf einnig að:
skila öryggisáætlun og viðbragðsáætlun
Leyfisgjöld
Innheimt er í samræmi við gildandi gjaldskrá.
Sjá gjaldskrá.
Vinnslutími umsóknar
Umsóknarferlið tekur um 2 vikur eftir að öllum gögnum hefur verið skila. Ef það vantar gögn færðu tölvupóst.
Þjónustuaðili
Geislavarnir ríkisins