Athugaðu hvort þú þurfir vegabréfsáritun til að ferðast til Íslands
Ef þú vilt heimsækja Ísland í styttri tíma en 90 daga og ert frá landi utan EES/EFTA, gætir þú þurft að sækja um vegabréfsáritun.
Ferðalangar með Schengen áritun
Ísland er aðili að Schengen-samstarfinu. Það er samstarf 29 ríkja sem miðar að því að tryggja frjálsa för fólks yfir landamæri aðildarríkjanna.
Samræmd vegabréfsáritun er gefin út af öllum Schengen-ríkjunum og gildir hún til ferða um allt svæðið. Ef þú hefur þegar fengið útgefna Schengen-áritun þarftu því ekki að sækja sérstaklega um áritun til að ferðast til Íslands.
Schengen-ríkin eru: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Ísland, Ítalía, Króatía, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Þarf ég áritun
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun