Sýkingavarnir fyrir almenning
Örverur sem geta valdið sýkingum geta borist í fólk úr umhverfinu, með matvælum, með vatni, frá dýrum eða frá öðru fólki. Til þess að minnka líkurnar á því að smitast af örverum sem valda sýkingum skipta sýkingavarnir miklu máli. Meðal þeirra eru handþvottur, gott hreinlæti í umgengni við matvæli, að hylja munn og nef þegar fólk hóstar og hnerrar og að halda sig heima eða fjarri viðkvæmum einstaklingum þegar fólk er lasið.
Það er á allra ábyrgð að gæta að sýkingavörnum
Í meðfylgjandi myndböndum frá Sóttvarnastofnun Evrópu (ECDC) er minnt á hvernig sýklamengun getur dreifst frá einum til annars í daglegu lífi.
Það er á allra ábyrgð að sinna sýkingavörnum til að vernda eigin heilsu og annarra
Í 3. kafla sóttvarnalaga er brýnt fyrir einstaklingum að sýna sem mesta varúð við smitsjúkdómum og gera sér allt far um að sýkja hvorki sjálfan sig né aðra, að svo miklu leyti sem framkvæmanlegt er.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis