Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Staðfesting á undirskrift eða lögbókandavottun

Sýslumenn í hverju umdæmi annast svokallaða lögbókandavottun sem felur í sér opinbera staðfestingu á því sem efni hennar kveður á um. Lögbókandavottun jafngildir vottun tveggja manna um þá athöfn eða staðreynd sem hún tekur til.

Í lögbókandagerð getur falist:

  • Staðfesting á undirritun eða handsali löggernings

  • Staðfesting á hæfi manna eða heimild til að standa að efni skjals

  • Staðfesting á atvikum eða athöfnum.

Algengast er að óskað sé eftir staðfestingu lögbókanda á:

  • Undirskrift. Þetta er oft að kröfu viðtakanda skjals, til dæmis ef senda á skjalið erlendis.

  • Undirritun erfðaskrár. Þannig er tryggt að gætt hafi verið að þeim atriðum, sem erfðalög kveða á um að gætt skuli að við undirritun erfðaskrár. Sá sem ritar undir erfðaskrá þarf að vera svo heill heilsu andlega að hann sé fær um að gera erfðaskrá.

  • Undirritun kaupmála. Þannig er tryggt að undirskriftin hafi farið fram eftir settum reglum, þó svo að vottunin tryggi ekki leynd yfir efni kaupmála. Hver, sem þess óskar, á rétt á upplýsingum um tilvist kaupmála og efni hans.

  • Rithandarsýnishorn. Þegar ástæða er til að ætla að sami maður muni ítrekað þurfa staðfestingu lögbókanda á undirskrift getur hann látið lögbókanda í té rithandarsýnishorn á eigin ábyrgð. Lögbókandi gæti þá á grundvelli skriflegrar beiðni hverju sinni staðfest umrædda undirskrift án þess að sá sem ritar undir þurfi að mæta í eigin persónu á fund lögbókanda. 

Hvernig er undirskrift staðfest

Staðfesting undirskriftar fer fram á starfsstöð sýslumanns. Sá sem óskar staðfestingarinnar þarf að framvísa skilríkjum og undirrita skjalið eða kannast við undirskrift sína að fulltrúa sýslumanns viðstöddum. 

Kostnaður

Staðfesting lögbókanda á undirskrift kostar 2.700 krónur.
Lögbókandavottun á erfðaskrá og samninga kostar 5.400 krónur. 

Apostille vottun 

Erlendir viðtakendur gera stundum kröfu um apostille vottun skjals en þá þarf að fá lögbókandavottun á skjalið hjá sýslumanni og fá svo einnig apostille staðfestingu hjá starfsmanni utanríkisráðuneytisins sem er staðsettur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1, Kópavogi.

Þegar nota á íslensk skjöl og vottorð erlendis óskar viðtakandi skjalanna stundum eftir því að þau séu formlega staðfest. Með formlegri staðfestingu er átt við að starfsmaður utanríkisráðuneytisins sem er staðsettur hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1 í Kópavogi, stimpli og staðfesti með því að þar til bært yfirvald á Íslandi hafi gefið skjalið út eða vottað það.

Rétt er að taka fram að staðfesting ráðuneytisins felur ekki í sér efnislega staðfestingu á innihaldi skjalsins. Með henni er verið að staðfesta að íslenska stjórnvaldið sem gaf skjalið út eða stimplaði hafi í raun gert það.

Lög og reglugerðir

Erfðalög
Lög um lögbókandavottun

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15