foreldri hefur unnið á Íslandi samfellt síðustu 6 mánuðina fyrir barnsmissi,
í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði,
sem launþegi eða sjálfstætt starfandi einstaklingur.
Réttur stofnast þann dag sem foreldri verður fyrir barnsmissi og fellur niður 24 mánuðum síðar.
Allur ótekinn réttur á fæðingarorlofi fellur niður við andlát barns.
Lögheimili á Íslandi
Foreldri þarf að eiga lögheimili á Íslandi við barnsmissi, andvana fæðingu eða fósturlát. Foreldri þarf að hafa átt lögheimili hér á landi síðustu 12 mánuði fyrir þann tíma.
Frá árinu 2023
Lög um sorgarleyfi eiga við foreldra sem verða fyrir barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturláti 1. janúar 2023 eða síðar. Þá tóku lög um sorgarleyfi fyrst gildi.
Þau sem eiga rétt á sorgarleyfi
Foreldrar.
Forsjáraðilar.
Þau sem hafa gengt foreldraskyldu gagnvart barninu lengur en síðustu 12 mánuði fyrir barnsmissi.
Stjúpforeldri eða fósturforeldri sem hefur verið í skráðri sambúð eða gift foreldri eða forsjáraðila barnsins, eða verið með barnið í fóstri, lengur en 12 mánuði fyrir barnsmissinn.
Hægt er að senda tölvupóst til: faedingarorlof@vmst.is ef nánari upplýsinga er óskað um rétt til sorgarleyfis.
Launuð störf
Réttur til sorgarleyfis myndast þegar foreldri hefur:
unnið á Íslandi samfellt síðustu 6 mánuðina fyrir barnsmissi
í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli í hverjum mánuði.
Fyrir utan hefðbundin störf telst eftirfarandi líka til þátttöku á vinnumarkaði:
Foreldri sem starfaði í öðru EES-ríki á á framangreindu 6 mánaða tímabili getur átt rétt til sorgarleyfis. Skilyrði eru:
Foreldri er þátttakandi á innlendum vinnumarkaði við við barnsmissi, andvanafæðingu eða fósturlát.
Viðkomandi hóf störf á íslenskum vinnumarkaði innan 10 virkra daga frá því hætt var í í hinu EES-ríkinu.
Gögn sem þarf að senda
Vinnumálastofnun þarf að berast ráðningarsamningur sem staðfestir hvenær störf hófust á innlendum vinnumarkaði. Umsækjandi þarf jafnframt að sækja um U1-vottorð svo að stofnunin geti fengið upplýsingar um tryggingatímabil í öðrum löndum.
Orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Það skiptir ekki máli hvort orlofið sé ólaunað að hluta eða öllu leyti. Skilyrði er að foreldri hafi á því tímabili sem um ræðir verið í að minnsta kosti 25% starfshlutfalli.
Ef umsækjandi var launþegi í ólaunuðu leyfi þarf að berast afrit af ráðningarsamningi og samkomulagi við vinnuveitanda um leyfið.
Þetta á líka við um þann tíma sem:
viðkomandi sætir afleiðingum vegna brota á reglum um atvinnuleysistryggingar,
viðkomandi hefði átt rétt á slíkum bótum hefði viðkomandi skráð sig án atvinnu,
foreldri hafi hætt atvinnuleit tímabundið vegna orlofs erlendis og ekki hafa liðið meira en tíu virkir dagar þar til atvinnuleit hefur hafist að nýju.
Starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma verður að hafa verið að minnsta kosti 25%.
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar metur hvort foreldri hefði átt rétt á atvinnuleysisbótum hefði það sótt um þær.
Sá tími sem foreldri fær greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof, eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær.
Skilyrði er að starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma fyrir framangreindar greiðslur hafi verið að minnsta kosti 25%.
Þetta á líka við um þann tíma sem viðkomandi er á biðtíma eftir dagpeningum. Einnig ef viðkomandi hefði átt rétt á þessum greiðslum ef viðkomandi hefði sótt um þær, eða fær greiðslur sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði stéttarfélags eftir að hafa látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum. Skilyrði er að starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma fyrir framangreindar greiðslur hafi verið að minnsta kosti 25%.
Sjúkratryggingar Íslands meta hvort foreldri hefði átt rétt á greiðslunum hefði viðkomandi sótt um þær. Berast þarf afrit af matinu.
Þetta á líka við um þann tíma sem viðkomandi hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldrið sótt um þær hjá Tryggingastofnun. Ef foreldri hefði átt rétt á greiðslunum frá Tryggingastofnun þarf að berast afrit af matinu.
Skilyrði er að starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma fyrir framangreindar greiðslur hafi verið að minnsta kosti 25%.
Sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa.
Skilyrði er að starfshlutfall foreldris á viðmiðunartíma fyrir framangreindar greiðslur hafi verið að minnsta kosti 25%.
25% starfshlutfall
Fullt starf er 172 vinnustundir á mánuði, svo að 43 vinnustundir á mánuði myndu almennt teljast vera 25% starf. Fullt starf getur þó verið skilgreint öðruvísi í kjarasamningi og þá er frekar tekið mið af skilgreiningu í samningnum. Foreldrar sem eru ekki í vinnu eða í minna en 25% starfi geta átt rétt á sorgarstyrk.
Eigin rekstur
Fullt starf foreldris sem starfar við eigin rekstur miðast við að foreldri hafi greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt og tryggingagjald af reiknuðu endurgjaldi eða launum er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein eða samkvæmt kjarasamningi.
Aðrar greiðslur
Foreldri getur ekki fengið greiðslur sorgarleyfis og þessar greiðslur á sama tíma:
Greiðslur vegna orlofs eða starfsloka.
Fæðingarorlofsgreiðslur.
Atvinnuleysisbætur.
Endurhæfingarlífeyri.
Sjúkradagpeninga úr sjúkrasjóði stéttarfélags.
Sjúkradagpeninga frá Tryggingastofnun.
Slysadagpeninga frá Tryggingastofnun.
Greiðslur samkvæmt lögum um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
Foreldri sem nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns getur ekki á sama tímabili nýtt rétt sinn til greiðslna í sorgarleyfi.
Greiðslur frá öðrum ríkjum vegna sama barnsmissis, sömu andvanafæðingar eða sama fósturláts, fyrir sama tímabil, koma til frádráttar greiðslum í sorgarleyfi.