Rafrænir ökuritar eru litlar tölvur sem komið er fyrir í bílum, sem skrá aksturs og hvíldartíma bílstjóra á ökuritakort. Markmiðið er að skapa betra starfsumhverfi fyrir atvinnubílstjóra með því að passa upp á aksturs og hvíldartíma þeirra og bæta öryggi á vegum úti.
Hver bílstjóri hefur sitt eigið ökumannskort sem sett er í ökuritann við akstur.
Ökuritinn skráir hvenær bílstjóri ók, hvaða bíl og hvort lögboðnar hvíldir hafi verið teknar.
Gerðir ökuritakorta
Til eru fjórar mismunandi gerðir af ökuritakortum
Notkun ökuritakorts
Skylt er að ökumenn geymi kortið og hafi það í ökuritanum við akstur. Ekki er hægt að fjarlægja kortið á meðan á akstri stendur. Ökuritinn sjálfur geymir hraðaferil í 24 tíma og um eitt ár af akstursgögnum og því er akstur manna tvískráður.
Umsóknarferli
Sækja þarf um ökumannskort til Samgöngustofu. Umsækjandi þarf að vera með
gilt ökuskírteini frá ríki innan EES
ökuréttindi í gildi í flokkum C1, C, D1, eða D-flokki.
skráð lögheimili á Íslandi
Fylgigögn
Ef sótt er um ökumannskort með því að fylla út umsókn á pappír
Ljósrit eða mynd af báðum hliðum ökuskírteinis
Mynd af umsækjanda (nýleg og skýr andlitsmynd með hlutlausum bakgrunni)
Kostnaður
Greiða þarf 19.653 krónur sé kortið sótt til Samgöngustofu
Greiða þarf 20.936 krónur vilji umsækjandi fá kortið sent í ábyrgðarpósti
Framleiðsla
Tímabundið getur framleiðsla ökuritakorts tekið 4-6 vikur vegna flutning á framleiðslunni milli landa.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa