Til að fá útgefið skírteini svifflugmanns SPL (Part-SFCL) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá flugskóla sem hefur heimild til þjálfunar nemenda í svifflugi. Að loknu bóklegu námi hjá flugskóla þarf að standast bókleg próf hjá Samgöngustofu.
FCL.215 Próf í bóklegri þekkingu
Umsækjendur um flugmannsskírteini fyrir loftbelgi, skírteini svifflugmanns eða einkaflugmannsskírteini þurfa að ljúkra prófunum með 75% árangri að lágmarki í hverri námsgrein. Próf í bóklegu nám fer fram samkvæmt útgefinni námsskrá sem inniheldur níu próffög.
a) almennar námsgreinar:
Lög og reglur um loftferðir
Mannleg geta
Veðurfræði
Fjarskipti
b) sérstakar námsgreinar er lúta að mismunandi gerðum loftfara:
Flugfræði
Verklagsreglur í flugi
Afkastageta og áætlanagerð
Almenn þekking á loftförum
Flugleiðsaga
Próftakar
hafa 18 mánuði til að ljúka prófunum talið frá enda þess mánaðar sem fyrsta próf var þreytt
fá að hámarki fjórar tilraunir í hverju próffagi
Að loknu bóklegu prófi
Hefur nemandi 24 mánuði til að
ljúka verklegu námi
standast verklegt færnipróf með prófdómara
Þeir sem ekki fullnægja einhverjum framangreindra skilyrða þurfa að fá endurþjálfun hjá flugskóla og endurtaka bókleg próf Samgöngustofu.
Réttindi svifflugmanns (Part-SFCL)
Réttindi handhafa skírteini svifflugmanns eru að stjórna svifflugum án þess að taka greiðslu fyrir.
Til að mega flytja farþega þurfa flugmenn að hafa lokið að minnsta kosti einu af eftirfarandi:
10 klst. fartíma
30 flugtök
sem flugstjóri á svif- eða vélsvifflugum eftir útgáfu skírteinisins.
Til að viðhalda réttindum fyrir svifflugur (SPL)
þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum; að minnsta kosti einu af eftirfarandi:
fimm fartímum, þ.m.t. 15 flugtök
tveimur þjálfunarflugum með flugkennara á svifflugur
standast hæfnipróf með prófdómara.
Til að viðhalda réttindum fyrir ferðasvifflugur (TMG)
þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum, annað hvort:
að minnsta kosti 12 fartímum sem flugstjóri eða undir leiðsögn kennara í tví / einliða flugi;
þar af a.m.k 6 flugstundir og 12 flugtök og lendingar, ásamt einu þjálfunarflugi með flugkennara sem þarf að vera að lámarki 1 klukkustund
eða
standast hæfnipróf með prófdómara.
Lög og reglur
Þjónustuaðili
Samgöngustofa