Til að fá útgefið skírteini á létt loftför (LAPL) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá flugskóla sem hefur heimild til þjálfun nemenda á létt loftför
Skírteini á létt loftför (LAPL) fyrir flugvélar eða svifflugur er kostur fyrir þá sem eingöngu hafa áhuga á að stunda einkaflug á smærri vélum og valkostur fyrir þá sem ekki uppfylla skilyrði fyrir útgáfu 2. flokks heilbrigðisvottorðs (skilyrði fyrir útgáfu LAPL heilbrigðisvottorðs eru vægari).
LAPL skírteinið
uppfyllir ekki að öllu leyti kröfur Alþjóða flugmálastofnunarinnar (ICAO)
gildir ekki utan Evrópu
Fyrir þyrlur og flugvélar takmarkast réttindi við loftför undir 2000 kg.
takmarkast við að hámarki þrjá farþega (fjórir um borð með flugmanni).
Kröfur til útgáfu LAPL skírteinis fyrir þyrlur og flugvélar eru að mestu þær sömu og fyrir einkaflugmannsskírteini á sömu gerð loftfars nema verklegi hluti námsins er styttri.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa