Fara beint í efnið

Skipstjórnar og vélstjórnarréttindi á björgunarskip

Beiðni um björgunarskipaskírteini

Samgöngustofa gefur út atvinnuskírteini á björgunarskip samkvæmt lögum um áhafnir skipa og reglugerðar um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum. 

Kröfur til skipstjórnarréttinda

Skipstjóri á björgunarskipi skal hafa lokið smáskipanámi samkvæmt reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, eða sambærilegu. 

Kröfur til vélstjórnarréttinda

Vélstjóri á björgunarskipi skal hafa lokið vélgæslunámi samkvæmt reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á fiskiskipum, varðskipum og öðrum skipum, eða sambærilegu. 

Laga og reglugerðastoð 
  • Lög um áhafnir skipa nr. 82/2022.

  • Reglugerð um skipstjórnar- og vélstjórnarréttindi á björgunarskipum. nr. 555/2008.

Beiðni um björgunarskipaskírteini

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa