Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Kröfur vegna ofgreiðslna atvinnueysisbóta fyrir árin 2022-2024

28. janúar 2025

Vinnumálstofnun vekur athygli á því að á næstu dögum verða eftirstöðvar allra krafna vegna ofgreiðslna atvinnuleysisbóta fyrir árin 2022-2024 sendar til innheimtu hjá innheimtumiðstöðinni.

atvinnuleysisbaetur

Vinnumálstofnun vekur athygli á því að nú er verið að ljúka við að senda allar eldri kröfur til innheimtu hjá innheimtumiðstöðinni. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra sér um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysistrygginga fyrir Vinnumálastofnun. Um er að ræða kröfur sem stofnaðist til vegna ofgreiddra atvinnuleysistrygginga á árunum 2022-2024.

Eftir að skuld hefur verið send í innheimtu til innheimtumiðstöðvar stofnast krafa í heimabanka viðtakanda. Bent er á að unnt er að óska eftir greiðsludreifingu hjá sýslumanni. Slíkar beiðnir þurfa að berast skriflega á netfangið: innheimta@syslumenn.is. Sýslumannsembættið veitir allar upplýsingar um feril innheimtu og greiðsludreifingu. Allar spurningar um tilurð skulda skal beina til Vinnumálastofnunar í síma 515-4800 eða á netfangið: postur@vmst.is.

Um er að ræða áframhald vinnu sem hófst í október 2024 og var fjallað um í frétt á heimasíðu Vinnumálastofnunar og má nálgast hér: Tilkynning um innheimtu hjá sýslumanni | Vinnumálastofnun
Áætlað er að allar kröfur vegna ársins 2022 verði farnar í innheimtu í lok janúar og að kröfur vegna áranna 2023 fram að maí 2024 verði sendar á fyrstu vikum febrúar 2025. Síðustu kröfur verði því sendar til innheimtu um 17. febrúar 2025.

Megin ástæða þess að umræddar kröfur hafa ekki verið sendar fyrr til innheimtu er uppsafnað álag í kringum covid og upptaka á nýju tölvukerfi. Nánar var fjallað um málið í frétt Rúv sem nálgast má hér: COVID árin og tölvuuppfærsla útskýra rukkanir fjögur ár aftur í tímann - RÚV.is

Vakin er athygli á að þær aðstæður sem leiddu til þess að ekki var hægt að senda kröfur fyrr til innheimtu ættu ekki að koma upp aftur þar sem kröfur fara nú sjálfkrafa til innheimtu 30-60 dögum eftir afskráningu af atvinnuleysisbótum.