Fara beint í efnið
Vinnumálastofnun Forsíða
Vinnumálastofnun Forsíða

Vinnumálastofnun

Breytingar á fjárhæðum í sorgarleyfi

7. janúar 2025

Þann 27. nóvember 2024 tók gildi ný reglugerð um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.

Logo

Þann 27. nóvember 2024 tók gildi ný reglugerð um fjárhæðir greiðslna í sorgarleyfi og greiðslu sorgarstyrks.

Samkvæmt reglugerð nr. 1452/2024 eru hámarksfjárhæð og lágmarksgreiðslur í sorgarleyfi til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar til 31. desember 2025:

  • Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 16. gr. laganna skal nema

    800.000 kr.

    á mánuði.

  • Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna hækkar í

    167.441 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í 25-49% starfi)

  • Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 16. gr. laganna hækkar í

    232.061 kr

    . á mánuði. (Foreldrar í 50-100% starfi)

Samkvæmt reglugerð nr. 1452/2024 eru greiðslur sorgarstyrks til foreldra sem verða fyrir barnsmissi frá og með 1. janúar til 31. desember 2025:

  • Sorgarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna hækkar í

    101.260 kr.

    á mánuði. (Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli)

  • Sorgarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 25. gr. laganna hækkar í

    232.061 kr.

    á mánuði. (Foreldrar í fullu námi)

Tengill á reglugerð nr. 1452/2024; stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=d40640ad-e605-451e-b876-3f4a293da84e