Breytingar á fjárhæðum í fæðingarorlofi
7. janúar 2025
Þann 1. janúar 2025 tók gildi reglugerð um breytingar á fjárhæðum greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðum fæðingarstyrks.
Þann 1. janúar 2025 tók gildi reglugerð um breytingar á fjárhæðum greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðum fæðingarstyrks.
Samkvæmt reglugerð nr. 1453/2024 eru hámarksfjárhæð og lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar til 31. desember 2025:
Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema
800.000 kr.
á mánuði.
Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í
167.441 kr.
á mánuði. (Foreldrar í 25-49% starfi)
Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í
232.061 kr
. á mánuði. (Foreldrar í 50-100% starfi)
Samkvæmt reglugerð nr. 1453/2024 eru greiðslur fæðingarstyrks vegna barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar til 31. desember 2025:
Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í
101.260 kr.
á mánuði. (Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli)
Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í
232.061 kr.
á mánuði. (Foreldrar í fullu námi)
Þá verða ekki breytingar á greiðslum til foreldra barna sem fæddust fyrir 1. janúar 2025.
Tengill á reglugerð nr. 1453/2024; stjornartidindi.is/Advert.aspx?RecordID=d2926aee-829a-46d2-ae1c-758a72952e72