Við leitum að forverði
24. júní 2024
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forvarðar. Hér er spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði varðveislu.
Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir laust til umsóknar starf forvarðar. Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan sérfræðing á sviði varðveislu hjá stofnun sem er leiðandi á sviði opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar. Starfshlutfall er 50%. Þjóðskjalasafn Íslands gegnir hlutverki framkvæmdaaðila opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar og er opinbert skjalasafn. Nú standa yfir mestu breytingar í starfsemi Þjóðskjalasafns um langt skeið, þar sem áhersla er lögð á stafræna umbreytingu, örugga varðveislu, gott aðgengi og sjálfbærni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Styrkjandi forvarsla
Fyrirbyggjandi forvarsla, ástandskannanir, mótun, innleiðing og skipulagning í varðveislurýmum
Ráðgjöf og fræðsla til starfsfólks um varðveislu og fyrirbyggjandi forvörslu
Þátttaka í mótun innanhússferla, verklags og stefnu í varðveislumálum Þjóðskjalasafns
Þátttaka í uppsetningu sýninga, innan safns og utan
Hæfniskröfur
Háskólagráða í forvörslu skilyrði, framhaldsmenntun í faginu kostur
Markverð reynsla af forvörslu er nauðsynleg
Reynsla af sambærilegu starfi hjá skjalasöfnum eða öðrum varðveislustofnunum æskileg
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er áskilin
Góð almenn tölvukunnátta
Færni í mannlegum samskiptum, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í september eða eftir samkomulagi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Þjóðskjalasafns
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 08.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ólöf Jóna Tryggvadóttir, olof.j.tryggvadottir@skjalasafn.is Sími: 590 3300
Karen Þóra Sigurkarlsdóttir, karen@skjalasafn.is Sími: 590 3300