Ísland og Georgía undirrita loftferðasamning
26. febrúar 2025
Loftferðasamningur milli Íslands og Georgíu var undirritaður í Reykjavík í dag. Hann tekur til áætlunarflugs og leiguflugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda fluga eða áfangastaða, bæði fyrir farþegaflug og farmflutninga.


Sendinefndin á fundi með Samgöngustofu eftir undirritun samningsins. Frá vinstri: Pétur Thorsteinsson frá utanríkisráðuneytinu, Vala Hrönn Viggósdóttir innviðaráðuneytinu, Jón Gunnar Jónsson og Kristín Helga Markúsdóttir frá Samgöngustofu og fulltúar georgísku flugmálastjórnarinnar, Givi Davitashvili og Mindia Mindiashvili.
Þetta er fyrsti loftferðasamningur þjóðanna en undirbúningur að gerð samningsins hófst árið 2018. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Givi Davitashvili, flugmálastjóri Georgíu, undirrituðu samninginn.


Mynd: Utanríkisráðuneytið
Samningurinn veitir víðtæk réttindi og tekur til áætlunarflugs og leiguflugs milli ríkjanna án takmarkana á fjölda fluga eða áfangastaða, bæði fyrir farþegaflug og farmflutninga.
Loftferðasamningar eru mikilvægir viðskiptasamningar sem tryggja flutninga til og frá Íslandi auk þess að greiða aðgang íslenskra flugrekenda að alþjóðamörkuðum.
Samningateymi Íslands skipuðu Pétur Thorsteinsson, utanríkisráðuneyti, Vala Hrönn Viggósdóttir, innviðaráðuneyti, og Kristín Helga Markúsdóttir, Samgöngustofu.
Hér má nálgast yfirlit yfir loftferðasamninga Íslands við önnur ríki.