Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Drónabann yfir Grindavík - uppfært 22. nóvember 2024

21. nóvember 2024

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs hefur Samgöngustofa, að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna, bannað allt drónaflug yfir Grindavík.

Dróni

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs hefur Samgöngustofa, að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna, bannað allt drónaflug yfir Grindavík og nágrenni á svæði sem nær yfir eftirfarandi hnit:
63°52'24"N 022°28'20"W, 63°53'17"N 022°28'20"W, 63°55'47"N 022°25'52"W, 63°55'50"N 022°19'13"W, 63°53'43"N 022°19'00"W, 63°52'00"N 022°22'50"W.

Bannið nær yfir svæði sem kallast BIR65 og gildir frá yfirborði (SFC) upp í 1500 fet yfir sjávarmáli (AMSL). Viðbótar takmarkanir eru á svæði BIR4, sem nær frá 1500 fetum upp í 2500 fet yfir sjávarmáli, innan 2 sjómílna radíuss í kringum hnit 63°53'22"N 022°22'38"W.

Bannið gildir til miðnættis 31. desember 2024.

Undanþágubeiðnir skal senda til Samhæfingarstöðvar Almannavarna í gegnum netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlega hafið samband við flugturninn í Keflavík eða Reykjavík. Sjá einnig uppfærð NOTAM A0884/24 og A0883/24 ásamt SUP 11/2024.