Drónabann yfir Grindavík
11. janúar 2024
Vegna leitar- og björgunaraðgerða í Grindavík hefur Samgöngustofa, að beiðni Lögreglustjórans á Suðurnesjum bannað drónaflug yfir og við Grindavík.
Vegna leitar- og björgunaraðgerða í Grindavík hefur Samgöngustofa, að beiðni Lögreglustjórans á Suðurnesjum bannað drónaflug yfir og við Grindavík, annað en það flug sem tengist aðgerðunum beint. Bannið gildir til og með sunnudeginum 14.01.2024. Beiðnir um undanþágur berist Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.