EDPB birtir drög að leiðbeiningum um notkun gerviauðkenna og eflir samstarf við samkeppnisyfirvöld
20. janúar 2025
Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur samþykkt ný drög að leiðbeiningum um notkun gerviauðkenna til að auðvelda fyrirtækjum að uppfylla kröfur GDPR.


Evrópska persónuverndarráðið (EDPB) hefur samþykkt ný drög að leiðbeiningum um notkun gerviauðkenna til að auðvelda fyrirtækjum að uppfylla kröfur GDPR. Drögin skýra hvernig notkun gerviauðkenna getur dregið úr áhættu, bætt öryggi persónuupplýsinga og stuðlað að skilvirkari persónuvernd. Einnig samþykkti ráðið álit um tengsl persónuverndar- og samkeppnislaga, með áherslu á aukið samstarf milli eftirlitsaðila. Markmiðið er að tryggja samræmda framkvæmd laga og auka vernd einstaklinga í breyttu stafrænu umhverfi. Athugasemdir við drögin má senda inn til 28. febrúar 2025.