Talnabrunnur er kominn út - 4. tölublað 2023
13. júní 2023
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar hefur verið gefið út.
Tvö umfjöllunarefni eru í Talnabrunni að þessu sinni. Annars vegar grein um notkun ópíóíða á Íslandi á árunum 2014-2022 og hins vegar um viðhorf fólks til ólöglegra vímuefna og notkunar þeirra.
Greinarhöfundar eru Védís Helga Eiríksdóttir, Sveinbjörn Kristjánsson og Rafn M. Jónsson