Talnabrunnur - 6. tölublað 2024
5. september 2024
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út.
Umfjöllunarefni Talnabrunns að þessu sinni er mataræði landsmanna árin 2019 til 2023. Meðal annars er fjallað um neyslu á grænmeti, ávöxtum, gosi, orkudrykkjum, rauðu kjöti og fiski auk D-vítamíns.
Greinarhöfundar eru Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Hólmfríður Þorgeirsdóttir og Andrea Gerður Dofradóttir.