Sérfræðingur óskast á sóttvarnasvið hjá embætti landlæknis
24. október 2022
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á sóttvarnasviði með áherslu á gerð viðbragðsáætlana, framkvæmd þeirra og æfinga.
Viðkomandi vinnur einnig að öðrum verkefnum á sóttvarnasviði m.a. gerð leiðbeininga og er tengiliður við sóttvarnastofnun Evrópu varðandi viðbragðsáætlanir.
Í boði er áhugavert, fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á frumkvæði, fagmennsku og samskiptafærni. Viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga á sóttvarnasviði sem og almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Nánar um verkefni sóttvarnasviðs má sjá á vef embættis landlæknis:
Frekari upplýsingar um starfið, helstu verkefni og hæfniskröfur, ásamt umsókn má finna hér.
Sóttvarnalæknir