Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Rafrænt málþing fyrir heilbrigðisstarfsfólk og kennara um eflingu sjúklingaöryggis

26. nóvember 2024

Mánudaginn 16. desember klukkan 13:00-14:30 verður haldið norrænt málþing um eflingu sjúklingaöryggis. Málþingið verður rafrænt og fer fram á ensku.

Dagskrá rafræns málþings um eflingu sjúklingaöryggis 16. desember 2024

Á málþinginu verður kynntur norrænn viðmiðunarrammi sem þróaður var með það fyrir augum að bæta þekkingu og hæfni á sviði sjúklingaöryggis innan heilbrigðiskerfisins. Viðmiðunarramminn er sameiginlegt verkefni systurstofnana embættis landlæknis á Norðurlöndunum og hefur verið birtur í skýrslu á vef Norrænu ráðherranefndarinnar.

Á málþinginu verða einnig skoðaðar vísindalega studdar aðgerðir sem geta styrkt starfsfólk og nemendur og stuðlað að bættri öryggismenningu.

Frekari upplýsingar
Ólöf Elsa Björnsdóttir, verkefnastjóri
olof.e.bjornsdottir@landlaeknir.is