Rafræn útgáfa starfsleyfa
3. júní 2022
Frá og með 1. júní 2022 eru starfsleyfi heilbrigðisstarfsmanna gefin út rafrænt og þau send í pósthólf umsækjanda á island.is.
Frá og með 1. júní 2022 eru starfsleyfi heilbrigðisstarfsmanna gefin út rafrænt og þau send í pósthólf umsækjanda á island.is. Er þetta hluti af stafrænni vegferð embættis landlæknis með það í huga að bæta og hraða þjónustu við umsækjendur.
Þeir umsækjendur sem ekki hafa rafræn skilríki geta fengið starfsleyfi sitt sent í tölvupósti.
Leyfisveitingateymi