Ráðleggingar um mataræði sem embætti landlæknis gefur út byggja á bestu vísindalegu þekkingu
23. janúar 2025
Í samfélagsumræðunni nýlega um ráðleggingar um mataræði hefur margvíslegum rangfærslum verið haldið á lofti. Af þeim sökum telur embættið mikilvægt að ítreka að ráðleggingar embættis landlæknis taka mið af þörfum heilbrigðra einstaklinga og fela ekki í sér boð eða bönn. Þvert á móti er það meginstef ráðlegginganna að fólk borði fjölbreytta fæðu en sé jafnframt meðvitað um mögulega skaðsemi þess að borða óhóflega mikið af rauðu kjöti, gjörunnum matvælum og vörum sem innihalda mikið af mettaðri fitu og/eða viðbættum sykri.
Að þessu tilefni vill embætti landlæknis einnig koma á framfæri að ráðleggingar embættisins um mataræði sem gefnar hafa verið út hér á landi byggja á bestu vísindalegu þekkingu hvers tíma. Von er á nýjum ráðleggingum frá embættinu innan fárra vikna og hafa þær nú þegar verið kynntar fyrir ýmsum hagaðilum.
Þessar nýju ráðleggingar byggja á Norrænum næringarráðleggingum sem komu út árið 2023 og taka jafnframt mið af mataræði landsmanna. Nýjustu upplýsingum um mataræði fullorðinna var safnað á árunum 2019-2021.
Norrænu ráðleggingarnar voru unnar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar af sérfræðingahópi með fulltrúum frá heilbrigðis- og matvælayfirvöldum frá öllum Norðurlöndunum. Vinnan við þær var umfangsmikil og stóð yfir í fimm ár. Um 400 sérfræðingar á Norðurlöndunum rýndu kerfisbundið yfirlit vísindagreina og skrifuðu kafla um mismunandi næringarefni og fæðuflokka. Hver kafli var birtur til umsagnar á vefsíðu ráðlegginganna en þeir eru um 70 talsins. Ferlið var því gagnsætt og allar athugasemdir og svör birt líka. Norrænu næringarráðleggingarnar voru fyrst birtar árið 1980 og hafa því í allt verið endurskoðaðar sex sinnum á rúmum 40 árum.
Á árinu 2024 hefur faghópur frá háskólasamfélaginu og viðeigandi stofnunum komið að endurskoðun íslenskra ráðlegginga um mataræði á vegum embættis landlæknis. Nú þegar er búið að birta ný viðmið um orku- og næringarefni sem er grunnur fyrir ráðleggingarnar um mataræði. Sambærilegar ráðleggingar hafa einnig verið birtar í Danmörku, Noregi og Finnlandi og stendur til að birta í Svíþjóð á næstu vikum. Eini munur milli þjóðanna liggur í mismunandi matarmenningu að því leyti að aðgengi og hefð fyrir að nota einstaka fæðutegundir getur verið mismunandi milli landa.
Embættið ítrekar að sú vandaða vinna sem er á bak við bæði Norrænu ráðleggingarnar og nýjar ráðleggingar fyrir Ísland er byggð á sterkum vísindalegum grunni og gerð af óháðum sérfræðingum á þessu sviði. Ráðleggingarnar eru fyrst og fremst ætlaðar heilbrigðu fólki með það að markmiði að styðja við og efla góða heilsu til skamms og langs tíma og minnka líkur á ýmsum sjúkdómum. Einstaklingar sem glíma við heilsufarslegar áskoranir eða tiltekna sjúkdóma geta þurft sértækari ráðleggingar og stuðning við sínar matarvenjur. Þegar þörf er á slíkri aðstoð er ákjósanlegt að löggiltir næringarfræðingar eða löggiltir næringarráðgjafar veiti hana eða séu hafðir í samráði.
Frekari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is