Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Óskum eftir að ráða vef- og útgáfustjóra

18. ágúst 2022

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða vef- og útgáfustjóra. Um er að ræða áhugavert, fjölbreytt og krefjandi starf sem gerir kröfu um fagmennsku og ríka samskiptahæfni enda fylgir starfinu víðtækt samráð og samstarf innan og utan embættisins. Á næstu vikum mun embætti landlæknis opna nýjan vef undir island.is og verður viðkomandi leiðandi í því verkefni.

Landlæknir logo

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða vef- og útgáfustjóra. Um er að ræða áhugavert, fjölbreytt og krefjandi starf sem gerir kröfu um fagmennsku og ríka samskiptahæfni enda fylgir starfinu víðtækt samráð og samstarf innan og utan embættisins. 

Á næstu vikum mun embætti landlæknis opna nýjan vef undir island.is og verður viðkomandi leiðandi í því verkefni. 

Helstu verkefni og ábyrgð 

  • Ritstjóri efnis á ytri vef embættisins.

  • Ábyrgð á skipulagi vefsins, viðhaldi hans og þróun, ásamt öðrum verkefnum sem tengjast vefnum, eins og leitarvélabestun og greiningar m.a. í samstarfi við Stafrænt Ísland.

  • Umsjón með notkun embættisins á samfélagsmiðlum.

  • Ritstjórn, uppsetning og myndvinnsla.

  • Yfirlestur á skýrslum og öðru efni til útgáfu.

  • Þátttaka í gerð og útgáfu gæðaskjala.

  • Önnur verkefni að beiðni sviðsstjóra, landlæknis og sóttvarnalæknis. 

Hæfniskröfur 

  • Menntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla af vefþróun og vefumsjón.

  • Þekking og reynsla af myndvinnslu.

  • Þekking á helstu samfélagsmiðlum.

  • Mjög góð hæfni í íslensku. Geta til að skrifa vandaðan, læsilegan og skapandi texta og góð geta til að lesa yfir og lagfæra texta annarra.

  • Góð færni í ensku.

  • Góð leiðtogahæfni ásamt lipurð og færni í mannlegum samskiptum.

  • Öguð og fagleg vinnubrögð. 

Frekari upplýsingar um starfið á Starfatorgi þar sem einnig er sótt um starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.08.2022

Nánari upplýsingar veitir
Þórgunnur Hjaltadóttir, sviðsstjóri - thorgunnur@landlaeknir.is - 510-1900