Óskum eftir að ráða sérfræðing á sviði heilbrigðisupplýsinga
9. mars 2022
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á heilbrigðisupplýsingasviði við vinnslu og miðlun starfsemisupplýsinga sjúkrahúsa í tengslum við innleiðingu og þróun þjónustutengdrar fjármögnunar.
Sótt er um starfið á Starfatorgi þarm sem einnig eru nánari upplýsingar.
Á heilbrigðisupplýsingasviði embættisins er unnið að fjölmörgum spennandi verkefnum. Sviðið rekur gagnasöfn á landsvísu og er gagnasöfnun og gagnagreiningu embættisins ætlað að uppfylla margs konar þarfir. Má þar nefna stuðning við stefnu og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda og ber sviðið m.a. ábyrgð á gagnagreiningu og miðlun tölfræði um heilsufar, sjúkdómabyrði og starfsemi heilbrigðisþjónustu sem nýtist m.a. við fjármögnun þjónustunnar.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á almenna þekkingu í gagnagreiningu, öguð vinnubrögð, nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Um nýtt starf er að ræða og mun viðkomandi aðili taka þátt í þróun þess. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri heilbrigðisupplýsingasviðs en viðkomandi mun vinna í teymi sérfræðinga á sviðinu og í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
DRG (Diagnosis-Related Groups) flokkun starfsemisupplýsinga frá sjúkrahúsum
Samskipti við skráningaraðila í tengslum við DRG-vinnslu upplýsinga
Samskipti við Sjúkratryggingar Íslands vegna notkunar DRG-flokkunar til fjármögnunar
Þátttaka í gerð fræðsluefnis og leiðbeininga til skráningaraðila
Þátttaka í Norrænu DRG-samstarfi
Þátttaka í tölfræðilegri greiningu starfsemisupplýsinga
Þátttaka í teymum sem vinna að greiningu og túlkun heilbrigðisupplýsinga
Svara fyrirspurnum og erindum vegna ofangreindra verkefna
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem veitir sterkan grunn í skráningu, gagnavinnslu og gagnagreiningu í heilbrigðisþjónustu, t.d. nám á sviði heilbrigðisvísinda
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg t.d. rannsóknatengt framhaldsnám
Þekking og reynsla af tölfræðilegri greiningu gagna er skilyrði
Þekking og reynsla af vinnu með gagnagrunna er skilyrði
Þekking og reynsla af greiningu starfsemisupplýsinga sjúkrahúsa er kostur
Þekking og reynsla af DRG-fjármögnunarkerfinu er kostur
Góð almenn tölvukunnátta og ritfærni
Metnaður, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna í teymum og sjálfstætt
Góð færni í íslensku og ensku og gott vald á rituðu máli
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.03.2022
Nánari upplýsingar veita
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir - shara@landlaeknir.is - 510 1900
Þórgunnur Hjaltadóttir - thorgunnur@landlaeknir.is - 510 1900