Óskum eftir að ráða sérfræðilækni á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu
15. ágúst 2022
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðilækni á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu. Sviðið hefur m.a. eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum og umsjón með gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu. Sviðið tekur á móti ábendingum og rannsakar kvartanir sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir óvæntra atvika heyra undir sviðið.
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðilækni á svið eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu. Sviðið hefur m.a. eftirlit með heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsmönnum og umsjón með gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu. Sviðið tekur á móti ábendingum og rannsakar kvartanir sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu. Rannsóknir óvæntra atvika heyra undir sviðið.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf sem reynir á fagmennsku og samskiptahæfni. Í starfinu gefst tækifæri til að taka þátt í og hafa áhrif á gæði og öryggi heilbrigðisþjónustunnar.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri sviðs eftirlits og gæða heilbrigðisþjónustu en viðkomandi mun vinna með öðrum sérfræðingum sviðsins og embættisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsókn og faglegt mat kvartana, atvika og eftirlitsmála.
Ritun álits og niðurstöðu í kvartana-, atvika- og eftirlitsmálum.
Úrlausn og sérfræðiráðgjöf um læknisfræðileg málefni.
Þátttaka í gerð, innleiðingu og viðhaldi leiðbeininga um skimanir fyrir krabbameinum.
Þátttaka í gerð árangursviðmiða, faglegra krafna og leiðbeininga.
Samskipti og samvinna við helstu aðila innanlands og erlendis um eftirlit með heilbrigðisþjónustu.
Þátttaka í gæðavinnu, þróun verklags og vinnuaðferða sviðsins.
Þátttaka í stefnumótunarvinnu.
Önnur verkefni að beiðni sviðsstjóra og landlæknis.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem sérfræðilæknir.
Klínísk starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu, sem nýtist í rannsókn kvartana og atvika.
Þekking og reynsla af íslenska heilbrigðiskerfinu er æskileg.
Þekking og reynsla af gæða- og öryggismálum í heilbrigðisþjónustu er æskileg.
Mjög gott vald á talaðri og ritaðri íslensku er skilyrði.
Reynsla á sviði stjórnsýslu er kostur.
Jákvæðni og lipurð í samskiptum.
Gott vald á talaðri og ritaðri ensku.
Mjög góð hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti.
Öguð og fagleg vinnubrögð.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.09.2022
Frekari upplýsingar má finna á Starfatorgi, þar sem einnig er sótt um starfið.
Upplýsingar um starfið veita
Jóhann Magnús Lenharðsson, sviðsstjóri - jml@landlaeknir.is - 510-1900
Þórgunnur Hjaltadóttir, mannauðsstjóri - thorgunnur@landlaeknir.is - 510-1900