Öndunarfærasýkingar – Vikur 12 og 13 árið 2025
3. apríl 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum fyrir vikur 12 og 13 árið 2025 (17. – 30. mars 2025).
Fjöldi inflúensugreininga stefnir áfram niður á við. Greiningum á RS veirusýkingum hefur farið fækkandi frá lokum árs 2024 og nokkrir greindust í viku 13 en enginn í viku 12. Áfram greinast fáir með COVID-19. Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar fjórar vikur en tilfelli Mycoplasma halda áfram að greinast.
Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19
Fjöldi greininga á inflúensu stefnir rólega niður á við. Samtals greindust 20 einstaklingar í viku 13, þar af sjö með inflúensutegund A(pdm09), sex með tegund A(H3) og sjö með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en þrír einstaklingar voru undir fimm ára aldri, fjórir voru í aldurshópnum 5-14 ára, átta voru 15-64 ára og fimm voru 65 ára eða eldri. Sambærilegur fjöldi greindist í viku 12 og var dreifing á milli inflúensutegunda og aldurs einnig svipuð þessar tvær vikur.
Greiningum á RS veirusýkingu hefur fækkað frá lokum árs 2024. Í viku 12 greindist enginn með RS veirusýkingu, í fyrsta sinn frá október 2024. Í viku 13 greindust hins vegar sex einstaklingar, þar af þrír í aldurshópnum 65 ára og eldri, einn á aldrinum 15-64 ára og tvö börn undir eins árs aldri. Enginn lá á Landspítala með RS veirusýkingu í vikum 12 og 13.
Tveir einstaklingar greindust með COVID-19 í viku 13, báðir á aldrinum 15-64 ára. Enginn greindist með COVID-19 í viku 12. Enginn hefur legið á Landspítala með COVID-19 undanfarnar fimm vikur.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Fjöldi sem greinist með öndunarfæraveirur, aðrar en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, hefur sveiflast frá lokum árs 2024. Sambærilegur fjöldi greindist í vikum 12 og 13 og í vikum 8 til 10, en færri greindust í viku 11. Áfram greinist stærstur hluti með rhinoveiru (kvef) en í viku 13 varð aukning í greiningum á parainflúensu, samtals tíu tilfelli. Öndunarfærasýnum sem rannsökuð eru í viku hverri hefur fækkað frá ársbyrjun en í vikum 12 og 13 voru 195 sýni rannsökuð í hvorri viku fyrir sig. Hlutfall jákvæðra sýna hefur sveiflast á bilinu 35-45% undanfarnar átta vikur en fór hæst í rúm 60% í lok árs 2024.
Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar fjórar vikur. Greiningum á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur fækkað frá áramótum en í viku 13 varð aukning í greiningum þegar sex einstaklingar greindust.
Staðan í Evrópu
Áfram er talsvert um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES.
Inflúensufaraldur virðist hafa náð hámarki þó enn sé mikið um greiningar af bæði inflúensutegundum A og B. Tíðni innlagna á sjúkrahús vegna inflúensu hefur verið hæst í aldurshópnum 65 ára og eldri.
Áfram er talsvert um RS veirusýkingar en misjafnt er eftir ríkjum hvenær faraldurinn er í hámarki. Tíðni innlagna á sjúkrahús hefur verið hæst meðal barna undir fimm ára.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er enn mjög lág í öllum ríkjum.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Almennar sóttvarnir
Við minnum á að:
Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring
Hylja munn og nef við hósta og hnerra
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar
Þvo hendur oft og vel
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er
Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni
Sóttvarnalæknir