Öndunarfærasýkingar. Vikur 12 og 13 árið 2024
4. apríl 2024
Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.
Inflúensa er enn í nokkuð stöðugri dreifingu en þó virðist sem tilfellum fari fækkandi. Langflest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa verið af inflúensustofni A.
Fáir greinast með COVID-19 og RSV um þessar mundir. Fjöldi inniliggjandi einstaklinga á Landspítala með öndunarfæraveirusýkingar hefur lítið breyst undanfarnar vikur, en meirihluti þeirra hefur verið með inflúensu.
Bæði mislingar og hettusótt hafa borist til landsins nýverið. Hingað til hafa sjö hettusóttartilfelli verið greind á þessu ári og eitt tilfelli mislinga.
Sóttvarnalæknir