Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vika 8 2025

27. febrúar 2025

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 8 ársins 2025 (17.-23. febrúar 2025).

Mynd. Mælaborð um öndunarfærasýkingar

Fjöldi greininga á bæði inflúensu og RS-veirusýkinga stefnir heilt yfir niður á við en í viku 8 greindist svipaður fjöldi með þessa sjúkdóma og í viku 7. Áfram greinast fáir með COVID-19. Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum fjölgaði milli vikna og greindist aukinn fjöldi með Human Metapneumoveiru.

Inflúensa, RS-veirusýking og COVID-19

Fjöldi greininga á inflúensu stefnir niður á við en sambærilegur fjöldi greindist þó í viku 8 og viku 7. Samtals greindust 30 einstaklingar í viku 8, þar af 17 með inflúensutegund A(pdm09), níu með tegund A(H3) og fjórir með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en einn einstaklingur var undir fimm ára aldri, þrír voru í aldurshópnum 5–14 ára, 15 voru 15–64 ára og 11 voru 65 ára eða eldri.

Fimm einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 8, allir í aldurshópnum 65 ára og eldri. Þá dvöldu 15 einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu, sambærilegt því sem var í viku 7.

Svipaður fjöldi greindist með RS-veirusýkingu í viku 8 og í viku 7 en heilt yfir hefur greiningum farið fækkandi frá lokum síðasta árs. Í viku 8 greindust 15 einstaklingar, þar af níu í aldurshópnum 65 ára og eldri, þrír voru 15–64 ára, einn var 3–4 ára og tveir voru undir eins árs aldri.

Fimm einstaklingar lágu á Landspítala með RS-veirusýkingu í viku 8, þar af fjórir í aldurshópnum 65 ára eða eldri og eitt barn á aldrinum 3–4 ára.

Þrír greindust með COVID-19, allir í aldurshópnum 65 ára og eldri. Einn lá á Landspítala með COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Greindum öndunarfæraveirum, öðrum en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, fjölgaði miðað við undangengnar tvær vikur. Áfram greinist stærstur hluti með rhinoveiru (kvef), en í viku 8 varð aukning í greiningum á Human Metapneumoveiru. Alls greindust sjö einstaklingar með Human Metapneumoveiru í viku 8 en vikulegur fjöldi greininga hefur verið á bilinu 0–3 frá hausti 2024. Fjöldi greindra sýna í viku 8 var svipaður og í viku 7 og hlutfall jákvæðra sýna var einnig svipað, eða rúm 40%.

Fjöldi greininga á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) var svipaður og verið hefur en í viku 8 greindust fjórir einstaklingar. Einn á aldrinum 15-64 ára greindist með kíghósta.

Staðan í Evrópu

  • Talsvert er um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES.

  • Mikið er um inflúensu og tíðni innlagna á sjúkrahús er svipuð og þegar fyrri faraldrar hafa verið í hámarki. Tilfellum inflúensu virðist fara fjölgandi í um þriðjungi ríkja en annars staðar er faraldurinn í hámarki eða á niðurleið. Tíðni innlagna er hæst meðal einstaklinga 65 ára og eldri.

  • Staðan á RS-veirusýkingum er misjöfn eftir ríkjum en heilt yfir fer tíðnin lækkandi. Innlagnir á sjúkrahús vegna RS-veirusýkinga eru tíðastar meðal barna undir fimm ára aldri.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er mjög lág í flestum ríkjum ESB/EES.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins.

Forvarnir

Bólusetningar eru áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna inflúensu. Bóluefni er enn til hjá birgja og á heilsugæslum. Aðstandendur barna 6 mánaða til 4 ára, einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í forgangs- og áhættuhópum eru áfram hvattir til að þiggja bólusetningu en þessir hópar eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegna inflúensu.

Almennar sóttvarnir, við minnum á að:

  • Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.

  • Grímunotkun í heilbrigðisþjónustu á meðan inflúensufaraldur er í hámarki getur dregið úr útbreiðslu til viðkvæmra einstaklinga.

Sóttvarnalæknir