Öndunarfærasýkingar – Vika 7 2025
20. febrúar 2025
Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 7 ársins 2025 (10.-16. febrúar 2025).
Tilfellum inflúensu hefur fækkað undanfarnar tvær vikur. Greiningar á RS-veirusýkingu stefna áfram niður á við með svipuðu mynstri og í fyrravetur. Einn greindist með COVID-19 í síðustu viku. Greiningum á öðrum öndunarfæraveirum hefur fækkað undanfarnar tvær vikur. Verulega hefur dregið úr fjölda einstkalinga sem liggja á sjúkrahúsi með öndunarfæraveirur, einkum RS-veirusýkingu.
Inflúensa, RS-veirusýking og COVID-19
Greiningum á inflúensu hefur fækkað undanfarnar tvær vikur. Samtals greindust 32 einstaklingar í viku 7, þar af 14 með inflúensutegund A(pdm09), 12 með tegund A(H3) og sex með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en einn einstaklingur var undir fimm ára aldri, fjórir voru í aldurshópnum 5–14 ára, 15 voru 15–64 ára og 12 voru 65 ára eða eldri.
Átta einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 7. Af þeim var helmingur í aldurshópnum 65 ára og eldri, þrír voru 15–64 ára og einn á aldrinum 1–2 ára. Þá dvöldu 17 einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu, sem er talsverð fækkun miðað við undangengnar vikur.
RS-veirusýkingum fer áfram fækkandi en í viku 7 greindust 14 einstaklingar. Þar af var helmingur í aldurshópnum 65 ára og eldri, fjórir voru 15–64 ára, einn var 1–2 ára og tveir voru undir eins árs aldri.
Tveir einstaklingar lágu á Landspítala með RS-veirusýkingu í viku 7, þar af eitt barn á aldrinum 1–2 ára og einn í aldurshópnum 65 ára eða eldri.
Einn greindist með COVID-19 og var sá í aldurshópnum 65 ára og eldri. Enginn lá á Landspítala með COVID-19.
Aðrar öndunarfærasýkingar
Greindum öndunarfæraveirum, öðrum en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, hefur fækkað undanfarnar tvær vikur. Áfram greinist stærstur hluti með rhinoveiru (kvef) og kórónuveirur aðrar en SARS-CoV-2. Hlutfall jákvæðra sýna var svipað og í síðustu viku, um 40%.
Fjöldi greininga á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) var svipaður og verið hefur en í viku 7 greindust fjórir einstaklingar. Einn á aldrinum 3–4 ára greindist með kíghósta.
Staðan í Evrópu
Talsvert er um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES.
Mikið er um inflúensu og tíðni innlagna á sjúkrahús er svipuð og þegar fyrri faraldrar hafa verið í hámarki. Tilfellum inflúensu virðist fara fjölgandi í um þriðjungi ríkja en annars staðar er faraldurinn í hámarki eða á niðurleið. Tíðni innlagna er hæst meðal einstaklinga 65 ára og eldri.
Staðan á RS-veirusýkingum er misjöfn eftir ríkjum en heilt yfir fer tíðnin lækkandi. Innlagnir á sjúkrahús vegna RS-veirusýkinga eru tíðastar meðal barna undir fimm ára aldri.
Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er mjög lág í flestum ríkjum ESB/EES.
Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins.
Forvarnir
Bólusetningar eru áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna inflúensu. Bóluefni er enn til hjá birgja og á heilsugæslum. Aðstandendur barna 6 mánaða til 4 ára, einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í forgangs- og áhættuhópum eru áfram hvattir til að þiggja bólusetningu en þessir hópar eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegna inflúensu.
Almennar sóttvarnir, við minnum á að:
Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.
Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.
Hylja munn og nef við hósta og hnerra.
Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.
Þvo hendur oft og vel.
Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.
Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.
Grímunotkun í heilbrigðisþjónustu á meðan inflúensufaraldur er í hámarki getur dregið úr útbreiðslu til viðkvæmra einstaklinga.
Sóttvarnalæknir