Öndunarfærasýkingar. Vika 50 árið 2022
22. desember 2022
Í síðustu viku varð aukning á greiningum COVID-19, inflúensu og RSV hér á landi. Innlögnum á sjúkrahús vegna inflúensu fjölgaði, fækkaði vegna COVID-19 en stóðu í stað vegna RSV.
Í samantekt um viku 50 er farið nánar yfir síðastliðna viku.
Sóttvarnir draga úr líkum á að smitast og að smita aðra. Við viljum minna alla á að:
Fylgja tilmælum um bólusetningu.
Halda sig til hlés í veikindum.
Forðast umgengi við ung börn og aðra viðkvæma ef með einkenni.
Hylja nef og munn við hósta og hnerra.
Sinna handhreinsun.
Nota grímu við ákveðnar aðstæður eins og á heilbrigðisstofnunum þ.m.t. biðstofum.
Lofta út.
Forðast fjölmenni og halda fjarlægð eins og hægt er.
Mælt er með inflúensubólusetningu og COVID-19 örvunarbólusetningu fyrir:
Alla einstaklinga 60 ára og eldri.
Börn og fullorðna sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
Barnshafandi konur (bólusetningu fyrir inflúensu má gera á öllum þriðjungum meðgöngu en fyrir COVID-19 á öðrum og þriðja þriðjungi).
Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga sem taldir eru upp hér að ofan.
Sjá nánar um COVID-19 bólusetningar, þ.m.t. tilmæli um örvunarbólusetningu á 4ja mánaða fresti fyrir alla 60 ára og eldri, og börn og fullorðna með langvinna sjúkdóma.
Sóttvarnalæknir