Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Þessi frétt er meira en árs gömul

Öndunarfærasýkingar. Vika 4 2024

1. febrúar 2024

Í nýrri samantekt er farið yfir tíðni öndunarfærasýkinga og innlagna vegna þeirra og staðan á Íslandi borin saman við stöðuna í Evrópu.

Öndunarfærasýkingar. Nýtt tölublað

Fjöldi greininga COVID-19, inflúensu og RSV hefur farið fækkandi frá áramótum. Flest greind tilfelli af inflúensu þennan veturinn hafa verið af inflúensustofni A. Fjöldi einstaklinga sem greinist með öndunar­færaveirusýkingu við eða í innlögn á Landspítala í viku hverri hefur fækkað frá áramótum.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í fjórðu viku ársins 2024.

Sóttvarnalæknir