Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vika 3 2025

23. janúar 2025

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 3 ársins 2025 (13.–19. janúar 2025).

Mynd. Mælaborð um öndunarfærasýkingar

Inflúensan er enn í fullum gangi og forgangs- og áhættuhópar eru áfram hvattir til þess að þiggja bólusetningu. Greiningar á RS veirusýkingu stefna niður á við og áfram greinast fáir með COVID-19. Ný tilfelli kíghósta greindust eftir engar greiningar undangengnar sex vikur.

Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19

Fjöldi greininga á inflúensu hefur sveiflast frá áramótum. Samtals greindust 46 einstaklingar í viku 3, þar af 24 með inflúensutegund A(pdm09), 12 með tegund A(H3) og 10 með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en 15 einstaklingar voru í aldurshópnum 65 ára og eldri og sjö voru yngri en fimm ára.

11 einstaklingar inniliggjandi á Landspítala voru með inflúensu í viku 3. Af þeim voru sjö í aldurshópnum 65 ára og eldri, eitt barn á aldrinum 1–2 ára og annað á aldrinum 5–14 ára. Þá voru 24 einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu, sem er svipaður fjöldi og undangengnar þrjár vikur.

Fjöldi greindra RS veirusýkinga fór áfram fækkandi en í viku 3 greindust 24 einstaklingar, þar af yfir helmingur í aldurshópnum 65 ára og eldri. Þá greindust sex börn undir eins árs aldri í vikunni. Sjö einstaklingar lágu á Landspítala með RS veirusýkingu í viku 3, þar af fimm í aldurshópnum 65 ára og eldri og eitt barn undir eins árs aldri.

Í viku 3 greindust sex einstaklingar með COVID-19. Einn lá á Landspítala með COVID-19.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Af öðrum öndunarfæraveirum greindust flestir með rhinoveiru (kvef) í viku 3. Fækkun varð í greiningum á öðrum kórónuveirum (heldur en SARS-CoV-2) samanborið við undangengnar vikur.

Öndunarfærasýnum sem fara í veirugreiningu fækkaði milli vikna sem og hlutfall jákvæðra sýna sem var 39% í viku 3.

Svipaður fjöldi greindist með Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) í viku 3 og undangengnar þrjár vikur, eða sex einstaklingar. Tveir einstaklingar greindust með kíghósta, báðir á aldrinum 30–59 ára.

Staðan í Evrópu

  • Áfram er mikið um inflúensu í ríkjum ESB/EES. Tíðni innlagna vegna inflúensu er nú svipuð og þegar faraldur vetrarins 2022–2023 stóð sem hæst, en þá urðu heilbrigðiskerfi í mörgum ríkjum fyrir talsverðum áhrifum. Einstaklingar 65 ára og eldri eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum og innlögnum á sjúkrahús vegna árlegrar inflúensu sem brýnir mikilvægi forvarna (sérstaklega bólusetninga) fyrir þennan aldurshóp.

  • Tíðni RS veirusýkinga virðist heilt yfir á niðurleið í ríkjum ESB/EES þó ástandið sé misjafnt eftir ríkjum. Börn undir fimm ára aldri eru almennt í mestri hættu á alvarlegum veikindum og innlögnum á sjúkrahús vegna RS veirusýkingar.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er lág í flestum ríkjum ESB/EES. Líkt og með inflúensu eru einstaklingar 65 ára og eldri í mestri hættu á alvarlegum veikindum og innlögnum á sjúkrahús vegna COVID-19.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópusambandsins.

Forvarnir

Bólusetningar eru áhrifaríkasta vörnin gegn alvarlegum veikindum vegna inflúensu. Bóluefni er enn til hjá birgja. Aðstandendur barna 6 mánaða til 4 ára, einstaklingar eldri en 60 ára og aðrir einstaklingar í forgangs- og áhættuhópum eru áfram hvattir til að þiggja bólusetningu en þessir hópar eru í mestri hættu á alvarlegum veikindum vegna inflúensu.

Almennar sóttvarnir, við minnum á að:

  • Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar.

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring.

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra.

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar.

  • Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni.

  • Þvo hendur oft og vel.

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er.

Sóttvarnalæknir