Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar. Vika 2 árið 2023

19. janúar 2023

Minna var um staðfesta inflúensu, inflúensulík einkenni og COVID-19 samanborið við síðustu viku. Svipaður fjöldi greindist með RS veiru, Rhinoveiru og Metapneumóveiru.

Covid og inflúensa 1

Óvenjumargir hafa verið að greinast með skarlatssótt undanfarnar vikur miðað við meðaltal fyrri ára. Innlögnum vegna COVID-19 fækkaði á milli vikna sem og innlögnum vegna RSV. Innlagnir vegna inflúensu voru aðeins fleiri en í  fyrstu viku ársins en þó mun færri en í síðustu vikum liðins árs.

Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma á fyrstu viku ársins 2023.

Sóttvarnalæknir