Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Öndunarfærasýkingar – Vika 14 árið 2025

10. apríl 2025

Mælaborð sóttvarnalæknis um öndunarfærasýkingar hefur verið uppfært með gögnum út viku 14 árið 2025 (31. mars – 6. apríl 2025).

Mynd. Mælaborð um öndunarfærasýkingar

Fjöldi inflúensugreininga jókst lítillega í viku 14 samanborið við vikur 12 og 13, en almennt hefur greiningum fækkað í samanburði við fyrstu vikur ársins. Greiningum á RS veirusýkingu hefur farið fækkandi frá lokum árs 2024. Áfram greinast fáir með COVID-19. Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar fimm vikur en tilfelli Mycoplasma halda áfram að greinast.

Inflúensa, RS veirusýking og COVID-19

Fjöldi greininga á inflúensu jókst lítillega í viku 14 í samanburði við vikur 12 og 13 en frá byrjun febrúar þessa árs hefur greiningum fækkað rólega. Samtals greindust 26 einstaklingar í viku 14, þar af tíu með inflúensutegund A(pdm09), tíu með tegund A(H3) og sex með inflúensutegund B. Þeir sem greindust voru í öllum aldurshópum en sex einstaklingar voru undir fimm ára aldri, fjórir voru í aldurshópnum 5-14 ára, 11 voru 15-64 ára og fimm voru 65 ára eða eldri.

Sjö einstaklingar voru inniliggjandi á Landspítala með inflúensu í viku 14, þar af sex á aldrinum 15-64 ára og eitt barn undir eins árs. Þá dvöldu tíu einstaklingar á bráðamóttökum í lengri eða skemmri tíma með inflúensu í viku 14.

Greiningum á RS veirusýkingu hefur fækkað frá lokum árs 2024. Í viku 14 greindist eitt barn á fyrsta ári með RS veirusýkingu. Enginn hefur legið á Landspítala með RS veirusýkingu undanfarnar þrjár vikur.

Fjórir einstaklingar greindust með COVID-19 í viku 14, tvö börn undir 5 ára aldri og tveir á aldrinum 15-64 ára. Enginn hefur legið á Landspítala með COVID-19 undanfarnar sex vikur.

Aðrar öndunarfærasýkingar

Fjöldi sem greinist með öndunarfæraveirur, aðrar en inflúensu, RSV og SARS-CoV-2, hefur sveiflast frá lokum árs 2024 en sambærilegur fjöldi hefur greinst undanfarnar þrjár vikur. Áfram greinast flestir (20) með rhinoveiru (kvef) en í viku 14 greindust tíu með human metapneumoveiru. Fjöldi öndunarfærasýna sem rannsökuð eru í viku hverri hefur verið sambærilegur undanfarnar vikur og hlutfall jákvæðra sýna hefur verið á bilinu 35-40%. Miðað við fyrstu vikur ársins eru nú færri sýni rannsökuð. Í viku 14 voru 199 sýni rannsökuð og hlutfall jákvæðra sýna var 37%.

Enginn hefur greinst með kíghósta undanfarnar fimm vikur. Greiningum á Mycoplasma bakteríusýkingu (greiningar lækna óháð rannsóknarniðurstöðu) hefur fækkað frá áramótum en en vikulegur fjöldi sveiflast enn. Í viku 14 greindust tveir einstaklingar með Mycoplasma.

Staðan í Evrópu

  • Áfram er talsvert um öndunarfærasýkingar í ríkjum ESB/EES.

  • Inflúensufaraldur náði almennt hámarki í viku 6 þessa árs og er tíðni inflúensugreininga nú á niðurleið í næstum öllum ríkjum.

  • Faraldur RS veirusýkingar náði heilt yfir hámarki í viku 52 ársins 2024 en áfram er talsvert um greiningar. Þessi hæga lækkun á tíðni skýrist af miklum breytileika á milli ríkja á hvenær faraldurinn hefur náð hámarki.

  • Tíðni COVID-19 (SARS-CoV-2 sýkinga) er enn lág í öllum ríkjum.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sóttvarnastofnunar Evrópu.

Almennar sóttvarnir

Við minnum á að:

  • Varast umgengni við aðra sem eru með einkenni sýkingar

  • Vera heima á meðan þú hefur einkenni og þangað til vel á batavegi og hitalaus í sólarhring

  • Hylja munn og nef við hósta og hnerra

  • Sýna sérstaka varúð í nánd við viðkvæma einstaklinga ef þú ert með einkenni sýkingar

  • Þvo hendur oft og vel

  • Þrífa sameiginlega snertifleti og lofta út í sameiginlegum rýmum eins og hægt er

  • Íhuga notkun andlitsgrímu í fjölmenni

Stefnt er að útgáfu næstu samantektar miðvikudaginn 30. apríl nk. fyrir vikur 15, 16 og 17.

Sóttvarnalæknir