Öndunarfærasýkingar. Vika 12 árið 2023
30. mars 2023
Tilfellum af staðfestri inflúensu fækkaði milli vikna en fjöldi klínískra greininga á inflúensulíkum einkennum var svipaður í viku 12 og í viku 11.
Óvissustigi vegna COVID-19 var aflýst og verða nú vöktun, eftirlit og viðbrögð við COVID-19 með sama hætti og vegna annarra smitsjúkdóma sem sóttvarnalæknir vaktar. Mörg Evrópulönd hafa breytt áherslum í sýnatökum COVID-19 og almennt hefur dregið úr sýnatökum. Sambærilegur fjöldi greindist á Íslandi með COVID-19 í viku 12 og viku 11. Ætla má að fleiri smit séu í samfélaginu þar sem sýnatökum hefur fækkað. Klínískum greiningum á skarlatssótt fer fækkandi. Svo virðist sem fjöldi hálsbólgugreininga sé einnig á niðurleið. RS-veiru greiningum fer fækkandi sem og greiningum á adenóveiru og kórónuveirum öðrum en SARS-CoV-2. Svipaður fjöldi lagðist inn á Landspítala með/vegna COVID-19 og inflúensu í viku 12 samanborið við viku 11. Enginn lagðist inn á Landspítala vegna RSV í viku 12.
Í nýrri samantekt er farið nánar yfir tíðni öndurfærasjúkdóma í 12. viku ársins 2023.
Sóttvarnalæknir