Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu og ávísanir á sýklalyfið Staklox í varúðarskyni
9. febrúar 2023
Danska lyfjastofnunin hefur tilkynnt að nokkrir sjúklingar í Danmörku, sem fengu sýklalyfið Dicillin (hylki) frá fyrirtækinu Sandoz frá september 2022 til janúar 2023 hafi fengið sýkingar af völdum sýklalyfjaónæmra baktería (karbapenemasa-myndandi).
Tiltekin framleiðslulota sýklalyfsins Dicillin sem seld var í Danmörku reyndist menguð af sömu bakteríu. Sambærilegt lyf er selt hérlendis undir heitinu Staklox en það er í hylkjum frá sama framleiðanda.
Lyfjastofnun hefur stöðvað sölu á Staklox hérlendis á meðan málið er í rannsókn. Einnig hefur Lyfjastofnun innkallað lyfið frá einstaklingum sem hafa fengið lyfinu ávísað. Ástæða þess að Staklox er innkallað hérlendis er að einn einstaklingur hér á landi sem hafði tekið lyfið í júlí 2022 fékk sýkingu af völdum sömu bakteríu og greindist í Danmörku.
Þeir sem eru að taka lyfið Staklox eru beðnir að skila lyfinu í næsta apótek sem fyrst. Samheitalyf frá öðrum framleiðanda, Dicloxacillin Bluefish, verður afhent í staðinn einstaklingum að kostnaðarlausu. Sjá tilkynningu Lyfjastofnunar.
Læknar á Íslandi eru einnig beðnir að beina ávísunum á önnur sýklalyf sé þess kostur til að viðhalda birgðum af samheitalyfinu. Nægar birgðir eru til af öðrum sýklalyfjum sem nota má í stað Staklox, svo sem lyfinu Keflex.
Ekki hefur enn verið staðfest hvort Staklox hylki hafi mengast af þeirri bakteríu sem greindist í Danmörku. Ef það kæmi í ljós þá bendum við á eftirfarandi:
Bakterían getur í einhverjum tilfellum tekið sér bólfestu í meltingarvegi (sýklun) og orðið hluti af sýklaflóru viðkomandi en ekki er vitað hve oft það gerist.
Bakterían smitast ekki auðveldlega milli manna við venjuleg samskipti en getur borist á milli manna með náinni snertingu og saur-munn smiti eins og aðrir iðrasýklar.
Sýklun leiðir ekki sjálfkrafa til sýkingar þar sem mikið af svipuðum bakteríum eru nú þegar í meltingarvegi.
Sýklar í meltingarvegi geta þó valdið sýkingum, ekki síst þvagfærasýkingum.
Engar vísbendingar eru um að þessi tiltekna baktería valdi frekar sýkingum en aðrar bakteríur af sömu tegund.
Prófanir hafa leitt í ljós að þrátt fyrir greint sýklalyfjaónæmi er þessi baktería næm fyrir mörgum öðrum sýklalyfjum og því eru ýmsir meðferðarkostir í boði.
Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox því það hjálpar að velja hentugt sýklalyf ef sýkingar koma upp.
Mikilvægt er að upplýsa ef einstaklingur hefur tekið mengað Staklox ef hann leggst inn á sjúkrastofnun vegna möguleika á að sýkillinn dreifi sér innan stofnunar.
Sjá einnig:
Tilkynningu frá dönsku lyfjastofnuninni frá 7. febrúar 2023
Frétt Lyfjastofnunar frá 9. febrúar 2023
Frétt frá Statens Serum Institut (SSI) í Danmörku frá 6. febrúar 2023
Sóttvarnalæknir