Lyfjanotkun til umfjöllunar í nýjum Talnabrunni
31. ágúst 2022
Í nýju tölublaði Talnabrunns er fjallað um lyfjanotkun, annars vegar notkun ADHD lyfja hjá fullorðnum og börnum og hins vegar notkun slævandi lyfja og svefnlyfja hjá börnum.
Nýtt tölublað Talnabrunns, fréttabréfs landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, hefur verið gefið út. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið lyfjanotkun, annars vegar notkun ADHD lyfja hjá fullorðnum og börnum og hins vegar notkun slævandi lyfja og svefnlyfja hjá börnum.
Höfundar efnis eru Védís Helga Eiríksdóttir og Ólafur B. Einarsson.
Ritstjóri Talnabrunns er Hildur Björk Sigbjörnsdóttir.