Klínískar leiðbeiningar um greiningu og meðferð háþrýstings hafa verið gefnar út
26. september 2023
Klínískar leiðbeiningar um greiningu og meðferð háþrýstings hafa verið gefnar út.
Háþrýstingur (of hár blóðþrýstingur) er enn stórt vandamál og samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni er vangreindur og vanmeðhöndlaður háþrýstingur eitt af stærstu heilbrigðisvandamálum nútímans. Að sama skapi eru bætt greining og öflugri meðferð háþrýstings auk forvarnarstarfs meðal tækifæra til betri heilbrigðisþjónustu og heilsu. Háþrýstingur er áhættuþáttur hjarta-, nýrna- og heilasjúkdóma og sýnt hefur verið fram á að lækkun hækkaðs blóðþrýstings hamlar gegn öllum þessum stóru sjúkdómum nútímans, kransæðasjúkdómum, hjartabilun, alvarlegum hjartsláttartruflunum, heilablóðföllum, heilabilun og langvinnri nýrnabilun.
Þótt staðan hvað varðar greiningu og meðferð háþrýstings sé betri á Íslandi en víðast hvar eru sóknarfæri til að gera betur. Það var rætt á málþingi á Læknadögum og í framhaldinu var ákveðið að skrifa leiðbeiningar um greiningu og meðferð háþrýstings. Leiðbeiningarnar eru af ásetningi stuttar og knappar enda er markmiðið að draga saman aðalatriði málsins. Einnig er vísað til ítarlegri umfjöllunar margra virtra alþjóðlegra aðila og til umræðu sem hefur fjallað um mismunandi tillögur og rýnt mismunandi áherslur og ágreiningsmál.
Hópur valinkunnra sérfræðinga ritaði leiðbeiningarnar og kann landlæknir þeim bestu þakkir fyrir. Þau eru:
Emil Lárus Sigurðsson, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og forstöðumaður fræðasviðs heimilislækninga og Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu
Karl Andersen, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, yfirlæknir Landspítala og Hjartavernd
Margrét Ólafía Tómasdóttir, yfirlæknir á Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu, lektor við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og formaður félags Íslenskra heimilislækna
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, hjartalæknir við Landspítala, dósent við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og formaður hjartasjúkdómafélags íslenskra lækna
Vilmundur Guðnason, prófessor við heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands og forstöðulæknir Hjartaverndar
Guðmundur Þorgeirsson, prófessor emerítus, heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands
Landlæknir hvetur lækna til að kynna sér leiðbeiningarnar og hafa að leiðarljósi við greiningu og meðferð háþrýstings.
Alma D. Möller landlæknir
Frekari upplýsingar:
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is