Guðrún Aspelund settur landlæknir til 1. mars 2025
22. janúar 2025
Tímabundin setning Guðrúnar Aspelund, sóttvarnalæknis, í embætti landlæknis hefur verið framlengd til 1. mars 2025.
Tímabundin setning Guðrúnar Aspelund, sóttvarnalæknis, í embætti landlæknis hefur verið framlengd til 1. mars 2025. Guðrún var tímabundið sett til að gegna embættinu þann 10. desember 2024. Guðrún hefur verið sóttvarnalæknir síðan árið 2022 og mun áfram sinna því starfi.
Embætti landlæknis var auglýst laust til umsóknar í desember sl. en heilbrigðisráðherra skipar, samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007, landlækni til fimm ára í senn, að fengnu mati nefndar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu.
Nánari upplýsingar
Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis
kjartan.h.njalsson@landlaeknir.is