Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Fjórði (örvunar) skammtur COVID-19 bóluefnis

22. júní 2022

Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að þiggja fjórða skammtinn af COVID-19 bóluefni sérstaklega þeim sem eru 80 ára og eldri, heimilisfólki á hjúkrunarheimilum og yngri einstaklingum með undirliggjandi ónæmisvandamál.

Landlæknir logo

Sóttvarnalæknir hvetur fólk til að þiggja fjórða skammtinn af COVID-19 bóluefni sérstaklega þeim sem eru 80 ára og eldri, heimilisfólki á hjúkrunarheimilum og yngri einstaklingum með undirliggjandi ónæmisvandamál. Aðrir sem þess óska geta einnig fengið fjórða skammtinn.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins býður upp á opið hús í bólusetningar 21. júní til 1. júlí, milli kl. 13:00 og 15:00, virka daga, í Mjóddinni að Álfabakka 14a á 2. hæð.

  • Bólusett er í almannarými og það er grímuskylda. Notað er Pfizer bóluefnið en einnig verður hægt að fá Janssen ef óskað er.

  • Allar heilsugæslustöðvar bjóða upp á ákveðna bólusetningadaga og þar er hægt að panta tíma í síma 513-1700 eða í gegnum Mínar síður á heilsuvera.is.

  • Til að geta fengið fjórða skammt bóluefnisins þurfa að lágmarki fjórir mánuðir að hafa liðið frá þriðja skammti bóluefnisins.

  • Allir, 16 ára og eldri, sem fengu tvær grunnbólusetningar fyrir a.m.k. 4 mánuðum eru velkomnir í þriðja skammtinn. Allir sem eru óbólusettir eða vanbólusettir (hafa fengið einn skammt) eru sérstaklega hvattir til að mæta og ljúka bólusetningunni.

  • Þessir hópar eru hvattir til að bóka tíma í bólusetningu á heilsugæslustöð eða mæta í opið hús í Álfabakka 14a næstu tvær vikurnar.

Á landsbyggðinni er fólk hvatt til að skoða heimasíðu sinna heilsugæslustöðva eða hafa samband símleiðis til að panta bólusetningu.

Sóttvarnalæknir