Fara beint í efnið
Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Bólusetning gegn árlegri inflúensu

2. september 2022

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 13. september nk.

Bólusetningar

Inflúensubóluefni verður tilbúið til afhendingar frá dreifingaraðila frá og með 13. september nk. Bóluefni sem notað verður í bólusetningum veturinn 2022-2023 samkvæmt samningum sóttvarna­læknis við Vistor er:

  • Vaxigrip Tetra  – 90.000 skammtar skv. samningi við útboð 2019 og viðaukasamningum 2021.

Ónotuðum skömmtum var fargað í vor og var því pantað minna bóluefni í ár en í fyrra.

Í ár verður dreifingu forgangsraðað til heilbrigðisstofnana og hjúkrunarheimila í september og þess er vænst að bólusetningar geti hafist um allt land 15. september en aðrir sem fá úthlutað bóluefni fá það væntanlega í október, þ.m.t. aðilar sem sinna vinnustaðabólusetningum.

Dreifing bóluefnis til aðila sem sinna bólusetningum miðast við það magn sem óskað var eftir eða pantað sl. vetur nema annað hafi komið fram í samskiptum sóttvarnalæknis við ábyrgðaraðila bólusetninga.

Sóttvarnalæknir mælist til að eftirtaldir áhættuhópar njóti forgangs við inflúensubólusetningar:

  • Allir einstaklingar 60 ára og eldri.

  • Öll börn og fullorðnir sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.

  • Barnshafandi konur.       

  • Heilbrigðisstarfsmenn sem annast einstaklinga í áhættuhópum sem taldir eru upp hér að ofan.

Sjá nánar Dreifibréf nr. 4/2022 um bólusetningu gegn árlegri inflúensu

Sóttvarnalæknir