Aukning á COVID-19-greiningum
18. júlí 2024
Síðastliðnar vikur hafa greiningar á COVID-19 aukist töluvert.
Síðastliðnar vikur hafa greiningar á COVID-19 aukist töluvert. Innlögðum á Landspítala með COVID-19 hefur einnig fjölgað en samkvæmt talsmönnum spítalans eru veikindi ekki alvarleg. Í síðustu viku lá 41 sjúklingur inni með COVID-19. Landspítali hefur gripið til aðgerða til að sporna við útbreiðslu veirunnar innan spítalans meðal sjúklinga og starfsfólks, meðal annars með grímuskyldu.
Í byrjun júlí greindist 51 einstaklingur með COVID-19 með PCR-prófi, sem var fjölgun frá um 30 tvær vikurnar þar á undan. Í síðustu viku greindust svo 70 einstaklingar. Innlögðum einstaklingum með COVID-19 á Landspítala fjölgaði einnig. Hafa ber í huga að þessar tölur segja einungis til um staðfesta greiningu með PCR-prófi og ljóst að fleiri eru með COVID-19 í samfélaginu.
COVID-19 er smitandi sjúkdómur sem smitast með úða og dropum frá öndunarfærum. Þau afbrigði sem eru aðallega í dreifingu hérlendis nú eru þau sömu og eru að greinast í nágrannalöndunum (ómíkron BA.2.86 afbrigði JN.1, KP.2, KP.3). Aðrar öndunarfærasýkingar sem greinast hér um þessar mundir eru helst rhinoveira (kvef) og adenoveira. Engin inflúensa eða RS-veira hefur greinst í nokkrar vikur fyrir utan eitt tilfelli RSV í síðustu viku.
Einkenni COVID-19 geta verið allt frá vægum kvefeinkennum til hás hita, slappleika og flensulíkra einkenna og einkenni eru mismikil milli einstaklinga. Það eru einna helst eldri einstaklingar og einstaklingar með undirliggjandi áhættuþætti sem veikjast alvarlega vegna COVID-19 og þurfa innlögn á spítala. Engar vísbendingar um að veikindin nú séu alvarlegri en síðastliðinn vetur.
Í sumum Evrópuríkjum hefur einnig sést aukning á tilfellum COVID -19 undanfarið án merkja um aukinn alvarleika veikinda.
Engar sérstakar reglur eru í samfélaginu vegna COVID-19 eða annarra öndunarfærasýkinga en full ástæða er til að sinna almennum sóttvörnum til að draga úr líkum á að smitast og að smita aðra, svo sem að halda sig heima og sem mest til hlés ef með einkenni, huga að nánd við aðra og umgengni við viðkvæma einstaklinga, sinna handþvotti og hreinlæti snertiflata og nota andlitsgrímu ef ástæða er til.
Mælt var með bólusetningum gegn COVID-19 síðasta haust hjá eldra fólki og einstaklingum í áhættuhópum. Í haust verður aftur boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 þegar uppfært bóluefni berst til landsins og tímasetning bólusetninga verður þá auglýst sérstaklega.
Minnum á almennar sóttvarnir til að draga úr smiti öndunarfærasýkinga:
Halda sig til hlés í veikindum
Forðast umgengni við ung börn, eldra fólk og aðra viðkvæma ef með einkenni
Hylja nef og munn við hósta og hnerra
Sinna viðeigandi handþvotti
Nota grímu ef ástæða til þar með talið á heilbrigðisstofnunum og biðstofum
Lofta út
Sinna hreinlæti snertiflata
Forðast fjölmenni og halda fjarlægð við aðra ef með einkenni
Sóttvarnalæknir