Skilgreining flug- og skipaáhafna í forgang vegna COVID-19 bólusetningar
27. apríl 2021
Flug- og skipaáhafnir sem þurfa að dvelja erlendis vegna sinna starfa lengur en sólarhring í senn munu fá bólusetningu með hópi 8.
Flug- og skipaáhafnir sem þurfa að dvelja erlendis vegna sinna starfa lengur en sólarhring í senn munu fá bólusetningu með hópi 8.
Fyrirtæki í rekstri á þessum vettvangi eru beðin um að taka saman lista yfir starfsmenn sem þetta á við um í samræmi við eftirfarandi:
Listi skal settur upp í Excel þar sem fram kemur
Kennitala
Nafn til staðfestingar á réttri kt.
Gsm símanúmer til að taka við sms boði
Póstnúmer til staðsetningar á landinu fyrir boð frá réttri heilsugæslu
Lista á að senda til:
Heilsugæslu í umdæmi þar sem fyrirtæki er staðsett (hafa þarf samband við viðkomandi heilsugæslu símleiðis til að fá heppilegt netfang uppgefið)
EÐA (ef starfsmenn eru búsettir víðsvegar á landinu) til verkefnastjóra COVID-bólusetninga hjá sóttvarnalækni eða annars tengiliðar fyrirtækis hjá sóttvarnalækni
Starfsmenn fyrirtækja sem eru í rekstri hér á landi geta ekki sjálfir skráð sig í þessa hópa. Starfsmenn erlendra fyrirtækja sem eru búsettir hér á landi geta sent sóttvarnalækni erindi í gegnum mottaka@landlaeknir.is ef þeir hafa ekki nú þegar tengilið hjá sóttvarnalækni.
Sóttvarnalæknir mun hafa samband við tengiliði sína og Samgöngustofnun til að tryggja að þessi skilaboð berist til aðila sem þau varða.
Sóttvarnalæknir