Óskum eftir að ráða yfirlækni á svið eftirlits og gæða
21. maí 2019
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni á svið eftirlits og gæða. Um er að ræða starf sem felur í sér eftirlit með heilbrigðisþjónustu, gæðastarfi og atvikum sem verða í heilbrigðisþjónustu.
Embætti landlæknis óskar eftir að ráða yfirlækni á svið eftirlits og gæða. Um er að ræða starf sem felur í sér eftirlit með heilbrigðisþjónustu, gæðastarfi og atvikum sem verða í heilbrigðisþjónustu. Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir að almenna þekkingu og reynslu í læknisfræði, samskiptahæfni og fagmennsku.
Viðkomandi mun vinna í nánu samstarfi við sérfræðinga embættisins en sviðið ber ábyrgð á og hefur umsjón með lögbundnu eftirliti landlæknis samkvæmt lögum um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007.
Helstu verkefni og ábyrgð
Eftirlit og úttektir á heilbrigðisþjónustu
Þróun og efling á notkun gæðavísa og öryggisviðmiða í heilbrigðisþjónustu
Innleiðing á Datix atvikaskráningakerfi og áætlun um gæðaþróun á landsvísu
Umsjón með og úrvinnsla tilkynninga um óvænt atvik í heilbrigðisþjónustu
Samskipti við helstu aðila innanlands og utan vegna eftirlits með heilbrigðisþjónustu
Úrvinnsla, rýni gagna og skýrslugerð vegna gæðaúttekta
Álitsgjöf eftir þörfum í eftirlitsmálum
Önnur verkefni að beiðni landlæknis og sviðsstjóra
Hæfnikröfur
Sérfræðimenntun í læknisfræði og íslenskt starfsleyfi sem sérfræðilæknir
Víðtæk starfsreynsla í heilbrigðisþjónustu
Þekking/reynsla af gæðastarfi er nauðsynleg
Þekking/reynsla á sviði stjórnsýslu er kostur
Góð færni í að rita íslensku# Almenn góð tölvukunnátta
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Upphafsdagur starfs er samkomulagsatriði. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá, auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, rökstuðningi fyrir hæfi ásamt sýn á starfið. Embættið hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Embætti landlæknis áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til og með 20.06.2019
Nánari upplýsingar veitir
Dagrún Hálfdánardóttir - dagrun@landlaeknir - 510-1900
Sótt er um starfið á Starfatorgi.